Viðbjóður

Hérna er á ferðinni algjör viðbjóður.  Utanvegaakstur með langvarandi eyðileggingu.  Mótórhjól, fjórhól og þvíumlíkt eiga að halda sér á jeppavegum landsins en ekki á reiðvegum eða spólandi á grasi.  Ég hitti fyrir stuttu fjórhjól á reiðvegi þar sem að ég var að fara framhjá með einn hest í taumi.  Hann kippti svo við að fara framhjá að ég reif næstum nöglina af.  Ég sá að grey ökumaðurinn tók eftir því og leið ekki vel yfir því en var hinn kurteisasti.  Hann ætti þó að nota fjölbreytta útiveru á jeppaslóðum miðhálendisins en ekki í dalverpum fullum af viðkvæmu grasi og VIÐKVÆMUM REIÐVEGUM.
mbl.is „Gera þetta alveg skipulagt“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Blóð úr páfa?

Æltar þessi veröld aldrei að taka sönsum! Helga blóð úr manni sem hefur gengt embættistarfi sínu sem páfi? Kaþólska kirkjan er enn að óvirða og koma um leið óorði á kristindóminn. Það verðu seint hægt að verja gjörðir kirkjudeildarinnar. Vei þeim! og Svei þeim...

sjá frétt
mbl.is Blóð úr páfa helgað
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Musterisgrafík

 

Mig langar svolítiðað tala um tattúið aftur.  Við erum musteri Guðs og eigum ekki að grafíkera á það eins og krakkar niður í miðbæþegar þeir krassa sín klessuverk í undirgöngum eða á húsveggi sem aðrir eiga.  Nú leyfi ég mér að nefna að Guð á okkur sem sína eign og hví ættum við því að hafa leyfi til að krassa tattú á hans eign?  Drottinn hefurreyndar tattúerað á okkur eða musteri sitt á vissan hátt.

 Hann innsiglar hönd sérhvers manns, til þessað allir menn viðurkenni verk hans.  (Job37:7)

Sem sagt Guð hefurinnsiglað fyrirfram hönd sérhvers manns. Þ.e.a.s. Orðið hönd hér hefur breiða merkingu og mætti þýða einnig semordinance eða tilskipun eða fyrirhuguð ráðagerð. Afi minn sem átti víðamesta handritasafn í lófalestri í Evrópu og oftaren ekki las hann í lófa en taldi það ekki spádóma heldur lesning af því semritað er í lófann fyrirfram og taldi að allt líf mannsins væri skrifað ílófann.  Hann taldi sig fiman viðlófalesturinn sinn og þekkti þetta vers í Biblíunni um að Guð væri meðfyrirfram áætlun með líf mannsins og ekki væri því til neitt sem heitirtilviljun.  Þetta gæti svo sem stuðaðeinhvern!

Í Efesus 1:11 ereinnig talað um fyrirhugun:


"Í honum höfumvér þá líka öðlast arfleifðina, eins og oss varfyrirhugað samkvæmt fyrirætlun hans, er framkvæmir allt eftir ályktunvilja síns,"

 
Sem sagt fyrirhugar"alla hluti" fyrirfram sem er erfitt að kyngja í heilu lagi.  Því er gott að minnast orða predikarans;

 

Pred. 8:17  "þá sá ég, að maðurinn getur ekki skiliðtil fulls allt Guðs verk, það verk sem gjörist undir sólinni, því að hversumjög sem maðurinn gjörir sér far um að leita, fær hann þó ekki skilið það tilfulls, og enda þótt spekingurinn hyggist að þekkja það, þá fær hann eigi skiliðþað til fulls"

 

Þó að Guð leyfi sér að skrá og skrifa á okkur læsilegan texta sem er full af táknmálum semspekingar hafa reynt að ráða í eins og afi minn heitin að þá hefur Guð einn leyfitil þess, musteriseigandinn sjálfur, eins og hver annar húsbyggjandi sem klárar að mála húsið sitt.  Hinsvegar höfum við ekki leyfi til þess aðkrassa á þetta musteri sem við sjálf erum með varanlegu bleki sem kallast tattú,allskonar myndir uppsprottnar af gríðarlegu hugmyndaflugi.   Enda er musterseigandinn EKKI ÞÚ!


Þriðja Móseb. 19:28  "Og þér skuluð eigiskera skurði í hold yðar fyrir sakir dauðs manns, né heldur gjöra hörundsflúr á yður. Ég er Drottinn."


Hvað er að vera góður?

Ég hef verið svolítið að velt a vöngum mínum yfir hvernig rökhyggja trúleysingjans er.  Jú hann segist vera góður borgari og geti leitt gott af sér.  Honum stafi engin hætta af frekar en þeim sem gerir ekki flugu mein og er því friðarsinni.  Styrkir góð málefni, elur börnin sin vel upp og liðsinnir bágstöddum og gefur sér að veikum og gamalmennum.  En bætir svo við að það þurfi engan Guð til þess að verka í okkur til þess að gera þessa hluti.  Þeir  halda því fram að trúaðir gera gæskuverkin vegna launanna sem þeim sé lofað meðan þeir (trúlausu)  séu lausir við allan slíkan þrýsting og gera þetta af einskærum fúsleika.   Gott og vel. 

Þeir trúuðu hafa annan skilning á þessu vegna trúar sinnar.  Jafnvel sá sem gerir góðverk fram að andláti sínu en ekki hefur trú verður ekki réttlættur fyrir verkin sín hversu góð sem þau kunna að vera.  Vondur maður sem gerir vond verk fram í andlátið en tekur á móti trúnni, réttlætist.  Trúleysingin  mun aldrei réttlætast fyrir góðverk sín því þau gagnast ekki frammi fyrir Guði.  Sumir telja að hægt sé að vera góður vegna góðverka sinna.  En í augum Drottins er engin góður.  Menn geta orðið réttlátir fyrir guðhræðslu sína og þar með arfleifð með hinum trúuðu.  Trúleysingin vinnur góðverkið sem hann gerir með fúsleik sínum og telur hærra vera  í dyggðinni en trúaðs manns sem byggir góðverk sín á guðlegum áhrifum.  Kærleikur er að nálægja sig öðrum.  Kærleikur sem endurspeglast frá trúuðum vegna guðlegra áhrifa á hann er ekki að finna nema hjá þeim sem eiga samfélag við Guð, sem þakka honum fyrir son Hans sem lagði allt í sölurnar og lagði líf sitt niður til þess að vera persónulegur Frelsari.  Í Biblíunni er aðeins til réttlátur eða illvirki.  Ekkert þar á milli.  Þriðja leiðin er ekki til í þeirri bók og því sýnist mér að  niðurstaðan sé þessi að trúleysingjar, sem hafa þegið alla vitneskju um Guð og hafnað honum eru taldir til illvirkja í Bók bókanna jafnvel þó þeir stundi gott.  Þó gæti verið að syndarar þessir hráu sem alltaf gætu einn daginn tekið trú eigi von frammi fyrir Guði sem hefur allt vald á dauðlegum líkama okkar, sál okkar og anda.


Gæðin í innkaupum

Á tímum sem þessum þar sem að við stingum fótunum ofaní kreppuaurinn upp að hnjám verður maður mjög svo var við hversu fólk af ýmsu tagi tekur upp á því að kaupa ódýrt á kostnað gæðisins.  Menn láta sér nægja ódýrt og hætta að pæla í því hversu lengi það endist.  Bæði á þessum tímum og svo í uppsveiflutímum lekur inn á markaðinn gæðalitlar vörur.  Við erum tildæmis að sjá í dag blöndunartæki sem seljast ódýrt en viðskiptavinurinn veit ekkert um gæðin þó svo að þau séu galvaní húðuð að innan.  Léleg klósett hvort sem þau eru upphengd eða ekki eru um þessar mundir að keppa sín á milli og jafnvel búðir sem hafa haft á sér goodwill viðskiptavinarins eru að leggja sig lágt í sandkassaleiknum.  Verðin á vörum eru svo himinhá í dag að varla er hægt að botna í því hvernig neytendur ná að halda buddunni í lagi.  En þá leka inn gæðalitlar vörur sem yfirleitt maður gæti hlegið af um aldur en svona gerast hlutirnir á eyrinni.  En ég vil aðeins koma því til skila að við megum ekki gleyma gæðavörunum.  Kaupum þau þrátt fyrir allt.  Kostnaðurinn verður minni þegar upp er staðið.

Hraunfoss túristagosins

 Hérna er myndir af Hraun eða kvikufossinum sem ég tók á ferðum mínum um gosstöðvarnar á Fimmvörðuhálsi og Morinsheiði

sjá hér: http://www.flickr.com/photos/ghordur/4491023621

 


Svona drígir maður skildingin

Með því að bjóða landsbankamönnum á skíði eykur Jón Ásgeir velvild sína og þar með gúddvillið hjá Landsbankanum
mbl.is Mynd á bloggsíðu vekur umtal
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Háð og spott fram að jólum

Ekki er hægt að finna mikið meira háð og spott og fyrir finnst á síðum (bls. 24) Fréttablaðsins í dag.  Jólasveinn í jötu...  Þvílíkt oj bara... Þvílíkt háð gagnvart hinum hæsta!  Þvílíkt spott og óvirðing jólahátíðarinnar.  Maður næstum gubbar...

 

Jesús er ljós heimsins, það eina ljós sem getur upplýst mann og gert mann lifandi.  Elti maður ekki þetta ljós að þá hallar undan og við verðum veikluð og sum okkar falla meðfram veginum.  Ekki verður hægt að líkja Frelsaranum við jólasvein.  Það er hreint háð og spott og algjör óvirðing.  Hanukka er ljósahátíð sem hefur staðið yfir í Ísrael í 9 daga.  Alltaf er bætt nýju ljósi á hverjum degi á 9 stjaka hanukka kerta eða olíustjakanum sem upphaflega var í Salómons musteri.   Stundum hvarflar að mér að þegar sungið er  "jólasveinar einn og átta" séu spott gegn Hanukka.  Miðstjakinn er kveiktur á hverju kvöldi en hinir 8 eru kveiktir  jafnt og þétt dag frá degi uns allt er kveikt.  Líkt er þegar jólasveinarnir koma harkandi til jóla og byrja einn af öðrum fram að jólum þegar kertasníkir er síðastur.  Ég hef stundum velt fyrir mér hvort Kertasníkir eigi að merkja miðstjakann.  En allt er öfugsnúið með háði og spotti og óvirðingu frá hinum vonda.  

20. desember 2009


Fáir dagar í fimmtugt!

Ég var minntur hressilega á það í dag þegar ég var truflaður við símann í vinnunni.  Gjaldkeri meistarafélagsins, sem ég er í, vildi minna mig á kvöldið í kvöld en þá átti að heiðra mig og þá sem verða fimmtugir á árinu.  Ég vil koma þakklæti mínu á framfæri því ég átti engan vegin von á þessu.  Þetta félag lætur lítið á sér kræla nema á jólunum í hefðbundnu jólakvöldi með góðum mat og áfengum drykkjarföngum eða þegar blásið er í aðalfund í apríl.  Ég reyndar afþakkaði þessa virðingu að sinni en það fæ að fljóta með þeim sem verða heiðraðir á næsta aðalfundi. 

Ég valdi hinsvegar að fara í staðinn á hressilega andlega veislu með flæði Heilags Anda í kirkjunni minni þetta kvöld og valdi vel og sé ekki eftir því og mun ekki.


Transfita

29. október 2009

23:05

Nýlega uppgötvaði ég furðulegar fitutegundir sem við étum mikið af án þess að vita nokkuð um þær.  Þær bera nafnið "silent killers" eða á íslensku þöglu böðlarnir eða þöglu morðingjarnir.  Á meðan maður fer í kirkju og lofar Drottinn hástöfum að þá eru litlir morðóðar smáfituagnirnar að kála manni að innan.  Líkt og þegar afríku-amerísku býflugurnar urðu til á rannsóknarstofu og eftir að genum þessara tveggja ofurbýflugna krossuðust í eina súperflugu að þá varð hún svo aggresív eða árásargjörn að mankynið óttaðist plágur af þessari gerð enda morðóðar.  Þegar Ísland hrundi efnahagslega hafði því verið spáð en ekkert var aðgert til þess að varna að svo yrði. Eins má segja um næringarfræðina að flestir sérfræðingar í því fagi hafa fulla meðvitund um óhræsi transfitunar sem hægt og bítandi lækkar rostann í heilbrigðum manni þar til honum er hætt á slæmum kvillum allt að krabbameini.  Ekki heyrist múkk í þessum fræðingum.  Engar aðvaranir og engin fræðsla.  Mankynið hægt og bítandi slappast niður í lélega heilsu hægt eins og þegar Rómverjar drápust í rólegheitum útaf blýi.

Transfita hækkar kólesterólið og sest að í líkamanum og veldur fituaukningu og dregur verulega úr líkum á góðri heilsu.  Einu sinni var það gleðifregn að fá jurtaolíur í stað smjörs.  Ástæðan var einfaldlega sú að í jurtaolíunni finnast góðar fitutegundir á borð við fjölómettaðar fitusýrur.  Þetta var gott og gilt.  Verst er að flestir halda enn í dag að þetta sé gott og gilt.  Í millitíðinni hafa þó vísindamenn breytt ómettuðu fitusýrunum í svo kallaðar "hydrogenated" fitusýrutegundir til þess að halda meiri stöðugleika í söluhillum stórmarkaða.  Þessar stökkbreyttu ómettuðu fitusýrur fá þá á sig nafnið transfita eða með öðrum orðum "silent killers".  Þar sem svona er illa komið fyrir jurtaolíunni í dag að þá er besta ráðið að snúa sér aftur að gamla góða íslenska smjörinu.  Það stendur fyrir sínu auk þorskalýsinu á morgnanna.  Gamla góða lýsið og íslenska smjörið eru það besta fáanlega hollustufæðan sem völ er á í dag gegn vái transfitunnar og þessu jurtaolíubulli.

 

Með kv.


Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband